Jim Magilton þjálfari N-Íra: Ísland er mjög gott lið
Auglýsing

Jim Magilton hóf ferilinn hjá Liverpool.

Mynd: Getty Images

Jim Magilton, þjálfari U21 landsliðs Norður-Írlands, var sáttur með að hafa náð jafntefli gegn Íslandi í undankeppni EM 2017 á Fylkisvelli í dag.
Magilton, sem á að baki fjölmarga leiki í ensku úrvalsdeildinni og hóf feril sinn hjá Liverpool, viðurkennir að hann hafi búist við erfiðum leik.

„Ef þú getur fengið eitthvað úr leik á útivelli gegn Íslandi, þá var þetta frábær frammistaða hjá okkur eftir svekkjandi frammistöðu á laugardag (gegn Skotlandi). Við komum sterkir til baka gegn mjög sterku liði Íslands,\" sagði Magilton við Fótbolta.net.
„Ég held að við höfum tekið veðrið með okkur hingað frá Norður-Írlandi, við erum frekar vanir þessu, takk.\"
Hann hrósaði íslenska liðinu í hástert.
„Íslenska liðið er mjög gott og þeir byrjuðu á tveimur frábærum úrslitum. Ég sagði leikmönnunum fyrir leikinn að ef við myndum ekki berjast jafn mikið og Ísland og gefa jafn mikið í þetta og þeir, þá yrði þetta mjög erfiður leikur. Þeir eru með gæðaleikmenn, framherjarnir eru frábærir, en mér fannst við höndla þetta vel og við fengum færi. Mér fannst þetta jafn leikur og jafntefli var sanngjörn niðurstaða,\" sagði Magilton.