Fotbolti.net
08.09.17 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Halldór Orri: Höfða persónulega bótakröfu gegn Sigurði Dúllu

Auglýsing
Svona er höndin á Halldóri Orra í dag.

Svona er höndin á Halldóri Orra í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Orri Björnsson, leikmaður FH, verður ekki með í leiknum gegn Grindavík um helgina. Halldór Orri fór í aðgerð á dögunum eftir að sin í fingri á vinstri hendi slitnaði. Halldór festi fingurinn á milli auglýsingaskilta í leik gegn sínum gömlu félögum í Stjörnunni.
„Þetta gerðist í hita leiksins og ég man ekki eftir miklum sársauka. Eini sársaukinn kom þegar deyfingin fór úr eftir aðgerðina,\" sagði Halldór Orri við Fótbolta.net í dag.

„Þetta er fáránleg óheppni. Stjörnustrákarnir skoðuðu skiltin eftir þetta og þeir segja að maður þurfi virkilega að ýta á skiltið til að koma einhverju þarna á milli. Ég hlýt að hafa klesst á skilið og sett þunga á það. Þannig hafa puttarnir smollið inn,\" sagði Halldór áður en hann sló á létta strengi.

„Ég fer beint í að höfða persónulega bótakröfu gegn Sigurði Sveini Dúllu,\" sagði Halldór en Siggi dúlla er allt í öllu í Garðabænum.

Halldór Orri þarf að vera í spelku í 10 daga en hann gæti mögulega náð lokaleikjum tímabilsins.

„Við ætlum að klára þetta mót með sæmd og tryggja Evrópusæti. Það er fyrir öllu. Við vorum þunnskipaðir í síðasta leik en menn eru að koma til baka og ég er mjög bjartsýnn fyrir síðustu leikina,\" sagði Halldór Orri að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

laugardagur 9. september
14:00 KR-ÍBV (Alvogenvöllurinn)
16:30 Víkingur Ó.-Fjölnir (Ólafsvíkurvöllur)

sunnudagur 10. september
17:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
17:00 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
17:00 FH-Grindavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-Breiðablik (Valsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.