Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 08. september 2020 08:30
Magnús Már Einarsson
Allir leikmenn Belgíu í próf - Verður leikurinn við Ísland?
Icelandair
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Brandon Mechele, varnarmaður Club Brugge, greindist með kórónuveiruna í prófi sem hann fór í á sunnudag.

Mechele var ónotaður varamaður í leik Belgíu og Danmerkur á laugardaginn. Hann hefur nú dregið sig út úr hópnum fyrir leikinn gegn Íslandi í Brussel í kvöld klukkan 18:45.

Allir leikmenn belgíska landsliðsins fara í kórónaveirupróf í dag áður en tekin verður lokaákvörðun með leikinn gegn Íslandi í kvöld.

Óvíst er hvort leikurinn fari fram ef fleiri smit greinast í belgíska hópnum.

Belgar tilkynntu einnig í gærkvöldi að 14 af 22 leikmönnum U17 ára landsliðs þeirra hefðu greinst með veiruna og að þeir hafi líklega smitast í rútuferð.



Athugasemdir
banner
banner
banner