Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 08. september 2021 22:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvað er á miðanum sem Arnar er alltaf með?
Icelandair
Arnar með miðann fræga.
Arnar með miðann fræga.
Mynd: EPA
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, heldur ávallt á miða þegar hann er á hliðarlínunni.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  4 Þýskaland

Fréttamaður Fótbolta.net var forvitinn um það hvað væri á þessum miða sem Arnar er alltaf með og ákvað að spyrja út í það á fréttamannafundi.

„Stundum ekki neitt," sagði Arnar og glotti.

„Þetta er bara miði sem ég nota til að punkta niður hjá mér á meðan leik stendur, ef eitthvað gerist. Ef það er einhver tímasetning þar sem eitthvað gerist, þá skrifa ég niður mínútuna og við getum kíkt á þá klippu í hálfleik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner