Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. september 2022 10:30
Auglýsingar
Enn laust í sjö manna vetrardeildina
Mynd: Boladeildin
Enn er laust fyrir lið í vetrardeild Bola deildarinnar tímabilið 2022-23, um er að ræða sjö manna utandeild sem Leiknir í Breiðholti stendur fyrir. Leikið er á Leiknisvelli á nýlegu gervigrasi.

Skráning fer fram á [email protected]

Deildin verður leikin með sama sniði og á seinasta tímabili.
18 lið leika í 2 deildum (A og B deild). Það verða því 16 leikir á lið. Dregið verður í riðla í upphafi og þegar riðlakeppni klárast munu efstu 4 liðin leika í A deild og neðstu fjögur liðin leika í B-deild.

Þetta er gert til þess að gera keppnina jafnari og skemmtilegri til loka.

Krýndir verða meistarar bæði í A og B-deild. Þátttökugjald er 125.000 kr.

Mótið hefst um miðjan okt og stendur allt fram til mánaðamóta mars/apríl. Almenna reglan er sú að leikið er um virka daga en ef frestanir eiga sér stað þarf stundum að koma þeim leikjum fyrir á varadögum sem eru sunnudagar. Reynt er að spila ekki ofan í allra stærstu leiki Meistaradeildarinnar. Leikmenn sem spila í Bestu-deild eða Lengjudeildinni eru ekki löglegir í Bola-deildinni.
Liðin sem tóku þátt síðasta vetur hafa forgang í deildina til 31. ágúst.


Athugasemdir
banner