Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. september 2022 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halldór spilaði sinn 400. leik fyrir Víking
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í gær lék Halldór Smári Sigurðsson, eða Herra Víkingur eins og hann er kallaður í póstnúmeri 108, sinn 400. leik fyrir uppeldisfélagið.

Fyrsti leikurinn kom árið 2007 og síðan hefur hann spilað leiki í 1. deild, úrvalsdeild, Lengjubikar, Reykjavíkurmótinu, bikarkeppninni, meistarakeppni KSÍ og Evrópukeppni.

Alls hefur hann spilað 403 keppnisleiki en þrír þeirra komu á láni hjá Berserkjum, venslafélagi Víkings, árið 2007.

Halldór hefur í sumar komið við sögu í átta leikjum í Bestu deildinni og einum leik í Mjólkurbikarnum. Leikirnir væru talsvert fleiri ef hann hefði ekki glímt við meiðli stóran hluta mótsins. Hann skoraði í sumar sitt fyrsta deildamark fyrir félagið og einnig sitt fyrsta Evrópumark.

Úr færslu Víkings á Facebook:
Halldór er sannanlega enn að bæta sinn leik og ná nýjum hæðum á hverju ári. Tvöfaldur bikarmeistari, Íslandsmeistari og Meistari meistaranna. Sem er sá titill sem lýsir Hr. Víkingi best. Hann er Meistari meistaranna!

Víkingur þakkar Halldóri allt hans framlag og óbilandi tryggð við félagið í fortíð og framtíð. Við hlökkum til komandi tíma með geggjuðum diagonal krossum með vinstri, tæklingum, mörkum og nýjum búningum!

Víkingur er betri, ríkari og hamingusamari með þig í liðinu.
Takk


Athugasemdir
banner
banner
banner