Íslenskir dómarar dæma leik Shamrock Rovers FC og Djurgardens IF í riðlakepni Sambandsdeildar UEFA í dag.
Ívar Orri Kristjánsson dæmir leikinn, en honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason.
Leikurinn er liður í fyrstu umferð riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.
„Er um að ræða fyrsta leik Ívars í riðlakeppni UEFA móts félagsliða, en hann hefur í sumar dæmt tvo leiki í forkeppninni og staðið sig frábærlega," segir á heimasíðu KSÍ.
Helgi Mikael Jónasson var dómari í viðureign Barcelona og Viktoria Plzen í Evrópukeppni unglingaliða í gær. Aðstoðardómarar voru þeir Kristján Már Ólafs og Eysteinn Hrafnkelsson en unglingalið Barcelona vann 3-0 sigur.
Athugasemdir