08.10.13 - 08:43
Elvar Geir Magnússon
Poyet orðinn stjóri botnliðs Sunderland (Staðfest)

Gus Poyet er orðinn stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images

Gus Poyet er orðinn stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images
Gus Poyet hefur fengið það verkefni að draga Sunderland úr fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Þessi 45 ára Úrúgvæi hefur skrifað undir tveggja ára samning og er orðinn knattspyrnustjóri félagsins frá og með deginum í dag.
Sunderland vermir botnsæti deildarinnar með aðeins eitt stig úr fyrstu sjö leikjunum.
Poyet er sjötti knattspyrnustjóri Sunderland á innan við fimm árum og þá eru bráðabirgðastjórar ekki teknir með. Hans opinberi titill verður yfirþjálfari eins og Paolo Di Canio bar.
Ellis Short, eigandi félagsins, segir að ýmsir kostir hafi verið skoðaðir en ferilskrá Gus, reynsla og ástríða geri hann að rétta manninum til að leiða félagið áfram.
Poyet er fyrrum leikmaður Chelsea og Tottenham en Mauricio Taricco og Charlie Oatway koma inn í starfslið hans. Poyet hefur verið án atvinnu síðan hann lét af störfum sem stjóri Brighton í sumar. Það er hans eina starf sem knattspyrnustjóri til þessa en hann hefur einnig starfað við þjálfun hjá Swindon, Leeds og Tottenham.
Hjá Brighton stýrði hann liðinu til sigurs í ensku C-deildinni 2010-11 og í úrslitakeppni B-deildarinnar á síðasta tímabili.
Eins og áður sagði verður hann titlaður yfirþjálfari og þarf að vinna undir Roberto De Fanti sem er titlaður yfirmaður knattspyrnumála.
Di Canio stýrði Sunderland aðeins í 13 leikjum og 175 dögum en var látinn fara eftir að samskipti hans við leikmenn náðu frostmarki.
Þrátt fyrir að hafa tapað gegn Manchester United og Sunderland í síðustu leikjum hafa margir jákvæðir punktar verið í þeim leikjum. Fyrsti leikur Poyet við stjórnvölinn verður gegn Swansea annan laugardag en nú er í gangi landsleikjahlé.