08.10.26 - 16:51
Elvar Geir Magnússon
Stranglega bannað að hoppa í stúkunni

Ruhrstadion, heimavöllur Bochum.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Þýska félagið Bochum hefur sett bann við að áhorfendur séu samtímis að hoppa upp og niður í einni af stúkunni á leikvangi þess, Ruhrstadion.
Verkfræðingar rannsökuðu austurstúkuna í viðhaldsáætlun fyrir leikvanginn og staðfestu burðarþol hennar. Hinsvegar getur hreyfing á stúkunni valdið svokölluðum trampólínáhrifum sem valda óþægindum fyrir suma áhorfendur.

Bochum, sem leikur í þýsku B-deildinni, hefur tilkynnt að búið sé að setja bann við allar samstilltar hreyfingar í umræddri stúku.
„Félagið harmar þau óþægindi sem þetta veldur en það er hinsvegar léttir að hægt sé að nota stúkuna að fullu, að því gefnu að bannið við hoppum sé virt," segir í yfirlýsingu Bochum.
Ruhrstadion tekur 26 þúsund áhorfendur en hún er hluti af fyrirhuguðum endurbótum á vellinum. Samkvæmt þeim þá geta stuðningsmenn aftur farið að hoppa í stúkunni árið 2028.