Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 08. nóvember 2020 22:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við getum unnið hvaða lið sem er"
Jack Grealish og Ollie Watkins.
Jack Grealish og Ollie Watkins.
Mynd: Getty Images
Ollie Watkins hefur komið mjög öflugur inn í lið Aston Villa á þessu tímabili.

Watkins varð dýrastur í sögu Villa þegar hann var keyptur fyrir allt að 33 milljónir punda frá Brentford í sumar. Hann er búinn að skora sex mörk í sjö leikjum í Aston Villa sem hefur komið á óvart. Hann skoraði tvennu í 3-0 sigri Villa á Arsenal í kvöld.

„Þetta eru góð þrjú stig gegn góðu liði," sagði þessi öflugi sóknarmaður eftir sigurinn á Arsenal.

Honum líkar lífið vel hjá sínu nýja félagi. „Ég elska að vera hérna. Það er auðvitað pressa þar sem ég er nýr leikmaður í liðinu og allir vilja að ég standi mig. Ég set bara hausinn niður og reyni að skora mörk."

„Þið hafið séð það í kvöld og gegn Liverpool, við erum frábært lið og getum unnið hvaða lið sem er."

Aston Villa er í sjötta sæti með 15 stig og Arsenal er í 11. sæti með 12 stig. Villa hefur leikið leik minna en Arsenal og gæti komist á toppinn með sigri í leiknum sem þeir eiga inni.
Athugasemdir
banner
banner
banner