Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 08. desember 2021 08:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásgeir Páll í Keflavík (Staðfest)
Ásgeir Páll
Ásgeir Páll
Mynd: Keflavík
Ásgeir Páll Magnússon var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Keflavíkur.

Ásgeir Páll er 21 árs gamall vinstri bakvörður og kemur til Keflavíkur frá Leikni Fáskrúðsfirði. Þar hafði hann leikið 85 leiki í deild og bikar.

Austfirskir leikmenn hafa reynst okkur Keflvíkingum vel undafarna áratugi en þar má nefna nokkra góða eins og Eystein Hauksson, Jóhann Ben og núverandi leikmann okkar Dag Inga Valsson og vonum að Ásgeir passi vel inní okkar flotta lið," segir í tilkynningu Keflavíkur.

Ásgeir hafði æft með Keflavík undanfarnar vikur og stóð sig það vel að hann fékk samning út tímabilið 2023.

Komnir til Keflavíkur
Ásgeir Páll Magnússon frá Leikni F.
Sindri Snær Magnússon frá ÍA
Rúnar Gissurarson frá Reyni S.

Farnir frá Keflavík
Athugasemdir
banner
banner