Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 08. desember 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zouma frá út janúar hið minnsta - Þrír miðverðir orðaðir við West Ham
Kurt Zouma
Kurt Zouma
Mynd: EPA
Kurt Zouma er meiddur aftan í læri og verðu frá fram á komandi ár. Zouma meiddist í leik með West Ham gegn Chelsea á laugardag.

Ef allt gengur upp verður Zouma frá í sex til átta vikur.

„Við vitum ekki alveg hversu lengi hann verður frá en þetta er ekki jafn slæmt og við óttuðumst fyrst," sagði David Moyes á blaðamannafundi í dag.

Angelo Ogbonna er frá út tímabilið svo það er undir þeim Craig Dawson og Issa Diop að leysa miðvarðastöðurnar í næstu leikjum.

Calciomercato á Ítalíu hefur orðað þrjá miðverði við West Ham eftir að Zouma meiddist, allir spila þeir á Ítalíu.

Nikola Milenkovic var nálægt því að ganga í raðir Hamranna í sumar en svo varð ekkert úr því. Fiorentina er talið vilja fá fimmtán milljónir evra fyrir Serbann. Gleison Bremer hjá Torino gæti einnig verið maðurinn fyrir West Ham eða Daniele Rugani hjá Juventus.
Enski boltinn - Lundúnarþema og baráttan um fimmta sætið
Athugasemdir
banner
banner