Dortmund vill Rashford - City að bjóða í Cambiaso - West Ham og Tottenham hafa áhuga á Ansu Fati
   sun 08. desember 2024 14:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: Arnar Helgi skoraði úr hjólhestaspyrnu í Kórnum
Lengjudeildin
Arnar Helgi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
HK 0-2 Njarðvík
Mörk Njarðvíkur: Amin Cosic, Arnar Helgi Magnússon

HK og Njarðvík áttust við í æfingaleik í Kórnum í gær.

Liðin munu bæði spila í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að HK féll úr Bestu deildinni síðasta sumar en Njarðvík hafnaði í 6. sæti Lengjudeildarinnar.

Amin Cosic og Arnar Helgi Magnússon skoruðu mörk Njarðvíkur í 2-0 sigri á HK í gær.

Arnar Helgi skoraði laglegt mark með hjólhestaspyrnu en Njarðvík deildi myndbandi af markinu á samfélagsmiðlum í dag.


Athugasemdir
banner
banner