Rúnar Alex Rúnarsson var í eldlínunni í tyrknesku deildinni í dag.
Rúnar Alex var í rammanum þegar Alanyaspor fékk Trabzonspor í heimsókn. Trabzonspor varð tyrkneskur meistari á síðustu leiktíð.
Alanyaspor gerði sér lítið fyrir og vann stórsigur. Staðan var 3-0 í hálfleik og liðið bætti við tveimur mörkum undir lok leiksins. 5-0 lokatölur.
Trabzonspor var mun meira með boltann í leiknum og fékk Rúnar fimm skot á sig en hann hélt markinu hreinu.
Birkir Bjarnason kom ekkert við sögu þegar Adana Demirspor varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti. Liðið tapaði 2-1 gegn Basaksehir og er því í 4. sæti fjórum stigum á eftir Basaksehir sem situr í 3. sæti en 2. og 3. sætið gefa þátttökurétt í Sambandsdeildinni.
Alanyaspor er í 8. sæti sex stigum á eftir Adana.