Fotbolti.net
09.02.23 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Iraola hafnaði Leeds

Iraola hafnaði Leeds
Canon

Mynd: Getty Images

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Andoni Iraola, eftirsóttur þjálfari Rayo Vallecano, hafi hafnað því að hefja samningsviðræður um knattspyrnustjórastarfið hjá Leeds United.

Andrea Radrizzani, eigandi Leeds, er í leit að næsta knattspyrnustjóra eftir að Jesse Marsch var rekinn á dögunum.

Iraola, sem lék meðal annars undir stjórn Marcelo Bielsa sem atvinnumaður, hefur gert frábæra hluti við stjórn hjá Rayo Vallecano sem er óvænt í fimmta sæti spænsku deildarinnar, með 32 stig eftir 20 umferðir.

Leeds gat keypt Iraola frá Vallecano fyrir 10 milljónir evra og sendi menn til að kynna hann fyrir hugmynd félagsins. Iraola hafnaði því að fara í samningsviðræður og ákvað að halda áfram hjá Vallecano.

Iraola hefur verið við stjórnvölinn í tvö og hálft ár hjá félaginu og gert frábæra hluti. Hann stýrði Vallecano upp í efstu deild á sínu fyrsta tímabili og bjargaði félaginu svo nokkuð örugglega frá falli í fyrra. Núna getur félagið hins vegar látið sig dreyma um Evrópusæti.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.