04.11.26
Lokamínúturnar sem breyttu Bestu deildinni - KR græddi níu stig
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Það er fátt meira svekkjandi í fótbolta en að fá á sig mark á lokamínútunum og sjá mikilvæg stig hverfa á örskömmum tíma. Að sama skapi er fátt sem jafnast á við tilfinninguna að skora sigurmark þegar allt stefnir í jafntefli eða tap. Það var nóg af slíkum augnablikum í Bestu deild karla á nýliðnu tímabili, þar sem mörkin streymdu inn og dramatíkin var oft mikil á lokakafla leikjanna. En hvaða lið græddu mest á þessum mörkum og hvaða lið eiga eftir að sjá sérstaklega mikið eftir lokamínútunum?
Fótbolti.net hefur farið yfir alla 162 leiki Bestu deildarinnar og skoðað hvaða lið skoruðu flest mörk eftir 80. mínútu, hver fengu flest á sig og hversu mörg stig félögin unnu eða töpuðu á lokakaflanum. Niðurstöðurnar eru ansi áhugaverðar og sýna meðal annars að stigataflan hefði getað litið töluvert öðruvísi út ef þessi mörk hefðu ekki verið skoruð.