Keflavík hefur samið við leikmann að nafni Christian Voleskey en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Keflavík mun leika í Pepsi Max-deildinni í sumar eftir að hafa tryggt sér sæti á síðasta ári.
Um er að ræða 28 ára gamlan framherja sem kemur til Keflvíkinga frá Bandaríkjunum. Christian er 28 ára gamall.
Christian hefur leikið fyrir nokkur lið í Bandaríkjunum og var síðast hjá Colorado Springs Switchbacks í USL deildinni sem er önnur deild þar í landi.
Einnig hefur Christian leikið með liðum eins og Saint Louis FC, Oklahoma City Energy og Pittsburgh Riverhounds SC.
Hann skoraði alls fimm mörk í 16 leikjum fyrir Colorado Springs eftir að hafa samið við félagið 2020.
Athugasemdir