Fotbolti.net
09.04.21 - 20:54
Victor Pálsson

England: Grátlegt tap Fulham gegn Wolves

Traore sá um um Fulham.

Traore sá um um Fulham.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Fulham 0 - 1 Wolves</b>
0-1 Adama Traore('93)
Fulham þurfti að sætta sig við grátlegt tap í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Wolves á heimavelli.

Fulham var þremur stigum frá öruggu sæti fyrir leikinn í kvöld og þurfti því nauðsynlega á sigri að halda.

Wolves virtist hafa komist yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Willian Jose kom boltanum í netið.

VAR ákvað hins vegar að Daniel Podence hafi verið fyrir innan í uppbyggingunni og markið því tekið af.

Það var ekki fyrr en á 93. mínútu sem sigurmarkið kom en það gerði Adama Traore fyrir gestina í appelsínugulu.

Traore fékk sendingu inn fyrir vörn Fulham og tókst að skora þrátt fyrir að vera í virkilega þröngri stöðu.

Wolves lyfti sér upp í 12. sæti deildarinnar með sigrinum og er nú nánast algjörlega búið að bjarga sér frá falli. Fulham er enn í fallsæti og hefur leikið tveimur leikjum meira en Newcastle sem er sæti ofar.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.