mið 09.apr 2025 12:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 8. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að nýliðar Fram muni enda í áttunda sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Fram heldur sér uppi ef spáin rætist.
Alda Ólafsdóttir er að fara inn í sitt fyrsta tímabil í Bestu deildinni síðan 2017.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. Fram, 25 stig
9. FHL, 19 stig
10. Tindastóll, 16 stig
Um liðið: Það er ekkert sérlega langt síðan Fram setti á laggirnar kvennalið sitt í núverandi mynd en uppgangurinn hefur verið hraður og öflugur. Liðið fór með sigur af hólmi í 2. deild kvenna sumarið 2022 og síðustu tvö ár hafa verið mjög góð í Lengjudeildinni. Í fyrra komst Fram upp í Bestu deildina með því að enda í öðru sæti Lengjudeildarinnar og það er spennandi sumar framundan í Úlfarsárdalnum þar sem liðið stefnir eflaust á það að halda sér uppi í deild þeirra bestu.
Þjálfarinn: Óskar Smári Haraldsson er þjálfari Fram og hefur verið það frá því fyrir tímabilið 2022. Óskar Smári, sem er frá Sauðárkróki, er mjög svo efnilegur og metnaðarfullur þjálfari en hann hefur verið að vinna gott starf hjá Fram undanfarin ár; fyrst með Anítu Lísu Svansdóttur og svo núna einn sem aðalþjálfari. Óskar Smári var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og aðalþjálfari Tindastóls áður en hann tók við störfum hjá Fram.
Álit Magga
Magnús Haukur Harðarson, fyrrum þjálfari Fjölnis, er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Svo draumarnir breytist ekki í martröð
„Dalur draumanna segja margir en það þarf allt að ganga upp svo að draumarnir breytist ekki í martröð. Eftir magnaðan uppgang síðustu ár er Fram komið í deild þeirra bestu og þær ætla sér að vera þar áfram."
„Eins og síðustu ár er lítið að marka leiki á undirbúningstímabilinu en það er alltaf mikil velta á leikmönnum milli ára en þegar komið er að fyrsta leik í Íslandsmóti hefur liðið verið klárt í bátana."
„Óskar Smári hefur stimplað sig inn sem einn af mest spennandi þjálfurum landsins og talar árangurinn sínu máli og er liðið vel skipulagt varnarlega og fremst á vellinum er hann með tvær markadrottingar sem þurfa að skila sínu fyrir framan markið svo að Fram haldi sér í deildinni."
Styrkleikar liðsins er klárlega liðsandinn og viljinn til að vinna hvor fyrir aðra og leikmenn liðsins skilja sitt hlutverk vel."
Lykilmenn: Dominiqe Bond-Flasza og Murielle Tiernan
Dom, eins og hún er kölluð, kom til Fram á miðju síðasta tímabili og spilaði stóra rullu í því að liðið komst upp úr Lengjudeildinni. Hún er frábær varnarmaður sem var á bekknum í liði ársins í Lengjudeildinni í fyrra þrátt fyrir að hafa spilað aðeins sjö leiki. Hún er ein af þeim leikmönnum í liðinu sem er með reynslu úr Bestu deildinni og hún spilar stórt hlutverk í sumar. Þá mun mikið mæða á Murielle í sóknarleiknum. Hún hefur alltaf verið frábær í Lengjudeildinni og var það í fyrra þegar Fram fór upp, en hún hefur ekki alveg náð að sýna sínar bestu hliðar í Bestu deildinni. Gerir hún það í sumar? Til þess að það gerist, þá þarf hún fyrst og fremst að haldast heil.
Gaman að fylgjast með: Alda Ólafsdóttir
Alda hefur farið mikinn síðustu tvö tímabil; með Fjölni í 2. deild þar sem hún skoraði 33 mörk í 20 leikjum og svo með Fram í fyrra þar sem hún gerði tólf mörk í 18 leikjum og var í liði ársins. Alda er mikil fyrirmynd þar sem hún hefur gert ótrúlega vel í því að koma til baka eftir barnsburð og verður gríðarlega gaman að sjá hana spila sitt fyrsta tímabil í Bestu deildinni síðan 2017 þegar hún lék með FH.
Komnar:
Lily Farkas frá Danmörku
Kam Pickett frá Bandaríkjunum
Katrín Erla Clausen frá Stjörnunni
Elaina LaMacchia frá Aftureldingu
Hildur María Jónasdóttir frá FH
Halla Helgadóttir frá FH
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir frá Stjörnunni
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Breiðabliki (var á láni hjá HK)
Una Rós Unnarsdóttir frá Grindavík
Freyja Dís Hreinsdóttir frá Fjölni
Farnar:
Eva Stefánsdóttir í Val (var á láni)
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Þórey Björk Eyþórsdóttir í KR
Emma Björt Arnarsdóttir til Fylkis á láni (var á láni frá FH)
Thelma Lind Steinarsdóttir (var á láni)
Birna Kristín Eiríksdóttir í Fylki (var á láni)
Katrín Ásta Eyþórsdóttir í Fylki á láni
Lilianna Marie Berg
Alia Skinner

Fyrstu fimm leikir Fram:
15. apríl, Þróttur R. - Fram (AVIS völlurinn)
22. apríl, Fram - FH (Lambhagavöllurinn)
29. apríl, Breiðablik - Fram (Kópavogsvöllur)
3. maí, Fram - FHL (AVIS völlurinn)
9. maí, Víkingur R. - Fram (Víkingsvöllur)
Spámennirnir: Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Brynjar Óli Ágústsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke og Sölvi Haraldsson.
Athugasemdir