Fotbolti.net
09.05.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Andri Björn og Guðjón Gunnars í Þrótt (Staðfest)

Andri Björn Sigurðsson.

Andri Björn Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þróttarar hafa fengið Andra Björn Sigurðsson og Guðjón Gunnarsson til liðs við sig frá ÍR.

Þeir hafa báðir æft með Þrótturum að undanförnu og leikið æfingaleiki með liðinu.

Guðjón er miðjumaður en hann var fyrirliði ÍR-inga á síðasta tímabili.

Andri Björn er framherji sem er uppalinn í herbúðum ÍR-inga en hefur einnig leikið með Gróttu, Aftureldingu og ÍH hér á landi.
Andri og Guðjón eru báðir á varamannabekk Þróttar gegn Haukum í 1. umferð í 1. deildinni en leikur liðanna hófst á gervigrasvellinum í Laugardal núna klukkan 14.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.