Fotbolti.net
09.05.13 - 15:01
Daníel Freyr Jónsson

David Moyes er nýr stjóri Manchester United (Staðfest)

David Moyes.

David Moyes.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur staðfest að David Moyes muni taka við af Sir Alex Ferguson sem stjóri liðsins
Moyes skrifaði undir sex ára samning á Old Trafford, en hann kemur frá Everton þar sem hann stýrði liðinu frá árinu 2002. Skotinn tekur við United þann 1. júlí næstkomandi þar sem samningur hans við Everton rennur þá út.

Hefur þetta legið í loftinu frá því í gærmorgun, en þá tilkynnti Ferguson um að hann ætlaði sér að hætta sem knattspyrnustjóri United eftir 26 ár við stjórnvölinn. Voru þau ár þau sigursælustu í sögu breskrar knattspyrnu.

Samkvæmt tilkynningu frá United mun félagið hafa leitað til Moyes þar sem Ferguson hafði mælst til að hann yrði arftaki sinn hjá félaginu.

Moyes er fimmtugur að aldri og stýrði hann Everton í yfir 500 leikjum eftir að hafa komið frá Preston North End. Hann á þó eftir að stýra liðinu í tveimur leikjum til viðbótar á þessari leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.