Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 09. maí 2021 13:53
Aksentije Milisic
Myndband: Frábær afgreiðsla Traore gegn Man Utd
Mynd: EPA
Þessa stundina eigast við Aston Villa og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Þegar þetta er skrifað er staðan 1-0 fyrir Aston Villa en það var Bertrand Traore sem skoraði eina mark leiksins hingað til.

Ef Aston Villa vinnur þennan leik þá er Manchester City endanlega orðið enskur meistari. Man Utd byrjaði leikinn að krafti en heimamenn hafa unnið sig vel inn í leikinn.

Á 24. mínútu kom fyrsta mark leiksins og var það einkar glæsilegt. Traore fékk þá boltann inn í teignum með Victor Lindelof í bakinu.

Hann var í mjög þröngur færi en náði á magnaðan hátt og þruma knettinum upp í samskeytin fjær.

Þessa frábæru afgreiðslu hjá Traore má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner