Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 09. maí 2022 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bergrós áfram á Selfossi (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss er búið að semja við Bergrósu Ásgeirsdóttur út næstu leiktíð og verður hún því áfram hjá uppeldisfélaginu á næsta ári.

Bergrós er 25 ára gömul og hefur leikið 104 keppnisleiki fyrir Selfoss, þar af 58 í efstu deild.

Hún hefur ekki spilað heilt keppnistímabil á Íslandi undanfarin ár þar sem hún hefur stundað nám við Arkansasháskóla og verið lykilmaður og fyrirliði háskólaliðsins Little Rock Trojans.

„Ég er ótrúlega ánægður með að hafa náð að framlengja við Beggó. Hún er mjög mikilvæg í hópnum, gefur af sér jákvæða orku og hefur verið alveg frábær í nýrri stöðu á þessu ári," segir Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss.

„Hún er að verða fjölhæfari leikmaður og ég held að við eigum eftir að sjá hana vaxa enn meira á næstu mánuðum."

Selfoss hefur farið vel af stað í Bestu deildinni og er með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.


Athugasemdir
banner
banner