Fjórir leikir fara fram í 3. umferð Bestu deildar kvenna í dag en Breiðablik spilar við Stjörnuna á meðan Valur fær sjóðandi heitt lið Keflavíkur í heimsókn.
KR og ÍBV eigast við á Meistaravöllum klukkan 18:00 áður en Valur spilar við Keflavík á Origovellinum. Valur vann fyrsta leikinn en tapaði svo fyrir Þór/KA í síðustu umferð. Keflavík hefur á meðan unnið bæði KR og Breiðablik í fyrstu tveimur leikjunum.
Selfoss spilar við Þrótt á JÁVERK-vellinum á sama tíma áður en Breiðablik mætir Stjörnunni á Kópavogsvelli.
Leikir dagsins:
Besta-deild kvenna
18:00 KR-ÍBV (Meistaravellir)
19:15 Valur-Keflavík (Origo völlurinn)
19:15 Selfoss-Þróttur R. (JÁVERK-völlurinn)
20:15 Breiðablik-Stjarnan (Kópavogsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir