Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 18:59
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd spilar stórleiki í Skandinavíu
Mynd: Man Utd
Manchester United hefur lokið við skipulagningu á æfingaleikjum undirbúningstímabilsins og fara fjórir leikir fram í Skandinavíu, þar af eru tveir stórleikir.

Rauðu djöflarnir hefja túrinn í Finnlandi gegn sögufrægu liði Wrexham áður en þeir mæta Rosenborg í Noregi.

Þar á eftir er ferðinni haldið til Svíþjóðar þar sem Man Utd spilar við stórveldi Atlético Madrid og Paris Saint-Germain.

Æfingatúrinn heldur svo áfram á Írlandi með leik gegn Leeds United og lýkur honum gegn AC Milan í Póllandi.


Slapp
banner