Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Yfirlæknirinn óvænt rekinn frá Arsenal
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Telegraph greinir frá því að Englandsmeistarar Arsenal eru búnir að reka yfirlækni félagsins, Zafar Iqbal, eftir rúmlega tvö ár í starfi.

Mikel Arteta og stjórnendur félagsins virðast ekki nægilega ánægðir með hvernig meiðsli leikmanna liðsins hafa verið höndluð undanfarin misseri er og talið að það sé ástæðan fyrir brottrekstri Iqbal.

Iqbal er 63 ára gamall og þaulreyndur í enska fótboltaheiminum eftir að hafa starfað fyrir Crystal Palace, Liverpool og Tottenham.

Telegraph greindi frá því í síðasta mánuði að Arteta hafi fengið spænskan sjúkraþjálfara til liðs við sig í vor til að greina meiðslavandræði Arsenal á tímabilinu. Ekki er ljóst hvort greining sjúkraþjálfarans hafi leitt til brottreksturs Iqbal.

Í frétt Telegraph er tekið fram að sjúkraþjálfarar og aðrir starfsmenn Arsenal séu afar hissa yfir fregnunum. Þeir hafi ekki búist við að Iqbal yrði rekinn.

Stjórnendur Arsenal vonast til að ráða nýjan yfilækni með getuna til að fækka meiðslavandræðum liðsins, sem hafa verið umtalsverð á síðustu tveimur leiktíðum.

   08.06.2026 19:47
Timber farinn heim og verður ekki með á HM

Slapp
banner
banner
banner