Fotbolti.net
30.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Varð næstelsti markaskorari Brasilíu á HM

Varð næstelsti markaskorari Brasilíu á HM
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Casemiro varð næstelsti markaskorari brasilíska landsliðsins á HM er hann gerði fyrra markið í 2-1 sigrinum á Japan í 32-liða úrslitum mótsins í gær.
Casemiro þakkaði traustið og var valinn maður leiksins
TENGT EFNI

Casemiro þakkaði traustið og var valinn maður leiksins

Casemiro skoraði með laglegu skallamarki eftir fyrirgjöf Gabriels í upphafi síðari hálfleiks.

Markið gaf Brasilíumönnum aukna trú á að þeir gætu klárað leikinn, sem Gabriel Martinelli gerði síðan í uppbótartíma.

Með markinu varð Casemiro næstelsti markaskorari Brasilíu á heimsmeistaramóti en hann er 34 ára gamall.

Bebeto er sá elsti en hann var 35 ára gamall þegar hann skoraði á HM 1998. Alls gerði hann þrjú mörk á mótinu.

Thiago Silva er þriðji elsti leikmaðurinn til að skora fyrir Brasilíu á HM en hann var 33 ára þegar hann skoraði á HM 2018. Nilton Santos er í fjórða sæti eftir mark sitt gegn Austurríki árið 1958 og Garrincha í því fimmta eftir markið sem hann skoraði gegn Búlgaríu á HM 1966.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.