Fotbolti.net
30.06.26 - 03:31
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu heimsklassa vörslu Verbruggen

Sjáðu heimsklassa vörslu Verbruggen
Canon

Mynd: EPA

Bart Verbruggen, markvörður hollenska landsliðsins, átti líklega bestu markvörslu mótsins í framlengingunni gegn Marokkó í 32-liða úrslitunum í nótt.
Verbruggen hafði verið sjóðandi heitur allan leikinn og var ekki á þeim buxunum að gefa neitt eftir þegar komið var í framlengingu.

Soufiane Rahimi fékk boltann inni í teignum, lagði hann fyrir sig og komst í færi sem flestir sóknarmenn hefðu skorað úr í níu af hverjum tíu tilraunum. Verbruggen sagði hins vegar nei.

Rahimi stýrði boltanum niður vinstra megin en Verbruggen varði fyrst með hnénu og síðan með hægri hendinni til að koma í veg fyrir að Afríkumeistararnir kæmust yfir.

Það hafa verið margar flottar vörslur á mótinu en þessi hlýtur að vera sú besta til þessa. Hana má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu vörsluna hjá Verbruggen
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.