Fotbolti.net
30.06.26 - 03:05
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Marokkó jafna í uppbótartíma - Van Dijk gleymdi sér

Sjáðu Marokkó jafna í uppbótartíma - Van Dijk gleymdi sér
Canon

Mynd: EPA

Marokkó tókst að komast í framlengingu með jöfnunarmarki í upphafi uppbótartímans gegn Hollendingum en það var varnarmaðurinn Issa Diop sem skoraði með föstum skalla.
Cody Gakpo braut ísinn þegar tuttugu mínútur voru eftir með góðu skoti eftir hraða sókn.

Marokkó, sem hafði fengið fjölmörg færi í leiknum, pressaði stíft og uppskar jöfnunarmark á fyrstu mínútu uppbótartíma.

Chemsdine Talbi átti þá fyrirgjöf inn á teiginn og Virgil van Dijk, fyrirliði Hollendinga, virtist aðeins gleyma sér í dekkningunni. Diop var aleinn og stýrði boltanum upp í hægra hornið.

Búið er að flauta til loka venjulegs leiktíma og framlenging tekur við.

Sjáðu markið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.