Fotbolti.net
30.06.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í dag - Svíar þurfa kraftaverk

Geta Svíar

Geta Svíar

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikir í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó fara fram í dag.
Fílabeinsströndin mætir Noregi klukkan 17:00 á AT&T-leikvanginum í Arlington í Texas-ríki í Bandaríkjunum. Þjóðirnar eru nánast hlið við hlið á heimslistanum, en Fílabeinsströndin er í 31. sæti á meðan Noregur er í 33. sæti.

Báðar þjóðir unnu tvo leiki í riðlakeppninni. Fílabeinsströndin vann Curacao og Ekvador á meðan Noregur vann Senegal og Írak.

Frakkland og Svíþjóð mætast klukkan 21:00 á MetLife-leikvanginum í New Jersey.

Það er enginn að búast við miklu frá Svíum sem voru alls ekki sannfærandi í riðlakeppninni á meðan Frakkar líta ótrúlega vel út.

Klukkan 01:00 mætast síðan gestgjafarnir í Mexíkó liði Ekvador. Mexíkó hefur unnið alla þrjá leiki sína á meðan Ekvador vann aðeins einn, gegn Þýskalandi í lokaumferðinni.

Leikir dagsins:
17:00 Fílabeinsströndin - Noregur
21:00 Frakkland - Svíþjóð
01:00 Mexíkó - Ekvador
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.