Fotbolti.net
30.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

„Liverpool hefur fullan rétt á að biðja um það verð sem félagið telur sanngjarnt“

„Liverpool hefur fullan rétt á að biðja um það verð sem félagið telur sanngjarnt“
Canon

Mynd: EPA

Piero Ausilio, yfirmaður íþróttamála hjá Ítalíumeisturum Inter, segir félagið hafa verulegan áhuga á enska miðjumanninum Curtis Jones, en að það sé ólíklegt að hann gangi í raðir félagsins.
Jones telur tíma sinn hjá Liverpool vera liðinn
TENGT EFNI

Jones telur tíma sinn hjá Liverpool vera liðinn

Inter hefur átt í viðræðum við Liverpool um Jones síðustu vikur en félögin hafa ekki náð saman um kaupverð.

Liverpool vill fá um 30 milljónir punda fyrir leikmanninn en Inter telur þá upphæð of háa.

Nottingham Forest er nú komið inn í myndina og útlit er fyrir að Inter hafi dregið sig úr baráttunni.

„Ég hef aldrei neitað því að við séum hrifnir af Jones en það er töluvert bil á milli okkar verðmats og verðmats Liverpool.“

„Liverpool hefur fullan rétt á að biðja um það verð sem félaginu finnst sanngjarnt. Þetta er mjög erfitt,“ sagði Ausilio.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.