Fotbolti.net
30.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Olise vill setjast niður með Bayern og ræða stöðuna

Olise vill setjast niður með Bayern og ræða stöðuna
Canon

Mynd: EPA

Franski landsliðsmaðurinn Michael Olise vill setjast niður með stjórn Bayern München eftir heimsmeistaramótið en BILD telur það vera góðar fréttir fyrir þýska félagið.
AS greindi frá því að Frakkinn hefði óskað eftir fundi með Bayern til að sjá hvernig félagið metur stöðuna og heyra hversu mikils hann er metinn.

Hann er meðvitaður um áhuga frá stórfélögum á borð við Real Madrid, Paris Saint-Germain og Liverpool.

Eftir heimsmeistaramótið mun hann funda með umboðsmönnum sínum, fara vandlega yfir stöðuna og ákveða næstu skref.

BILD telur þetta ekki vera slæmar fréttir fyrir Bayern, en félagið hefur rætt það síðasta árið að framlengja samning Frakkans.

Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern, mun sjá um viðræðurnar. Eitt er þó víst: Bayern er ekki opið fyrir því að selja hann í sumarglugganum.

Félagið vill verðlauna hann fyrir frammistöðuna síðustu tvö ár og er reiðubúið að tvöfalda laun hans, sem myndi gera hann að einum launahæsta leikmanni Bayern.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.