Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fös 09. júlí 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Quaison til Sádí-Arabíu (Staðfest)
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Robin Quaison er genginn til liðs við Ettifaq FC í Sádí-Arabíu.

Quaison er 27 ára gamall og hefur verið hjá Mainz undanfarin ár. Hann skoraði 34 mörk í 130 leikjum í Þýskalandi og mun nú reyna fyrir sér á nýjum slóðum.

Quaison hefur gert 9 mörk í 30 landsleikjum fyrir Svía og var í leikmannahópinum sem datt út í 16-liða úrslitum Evrópumótsins gegn Úkraínu.

Al Ettifaq endaði í fimmta sæti sádí-arabísku deildarinnar í fyrra og er Quaison stærsta stjarna liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner