Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 09. ágúst 2020 10:23
Aksentije Milisic
Meistaradeildin: KR mætir Celtic
Frá leik liðanna árið 2014.
Frá leik liðanna árið 2014.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Rétt í þessu var verið að draga í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu fyrir næstu leiktíð.

KR var í pottinum og drógst liðið á útivelli gegn skosku meisturunum í Celtic en leikurinn fer fram þann 18 eða 19. ágúst næstkomandi. Talið er að leikurinn fari fram á Celtic Park en þrátt fyrir það er möguleiki á því að leikurinn fari fram á hlutlausum velli.

Einungis er leikinn einn leikur að þessu sinni og því mætast liðin ekki heima og að heiman eins og hefur verið.
Á mánudaginn mun svo vera dregið í aðra umferð í forkeppninni.

KR og Celtic mættust síðast árið 2014 þar sem Celtic vann einvígið samanlagt 5-0.




Athugasemdir
banner
banner