Útskýrir af hverju varamarkvörður Blika kom inn á sem útileikmaður

Taylor Kane kom inn á sem útileikmaður gegn Dinamo á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Taylor kom inn á fyrir Katelyn Duong sem glímdi við veikindi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María veiktist úti í Kasakstan en náði að tryggja Blikum sigurinn gegn Dinamo.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs veiktist sjálfur í Kasakstan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Taylor Kane kom inn á sem útileikmaður gegn Dinamo á föstudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Taylor kom inn á seint í venjulegum leiktíma en það sem merkilegast var við innkomuna var sú staðreynd að hún kom inn á sem útileikmaður. Hún er markvörður en Blikar þurftu á henni að halda sem útileikmaður, og kom hún inn í sóknarlínuna.

Varamarkverði Breiðabliks skipt inn á sem útileikmanni
Eftir komu til Kasakstans komu upp veikindi í híopnum og ræddi Ian jeffs, þjálfari Breiðabliks, við Taylor að hún yrði að vera til taks sem útileikmaður í seinni leiknum. Í ofan á lag var ansi heitt og tók á að spila leikina.
Jeffsy ræddi við Vísi á föstudag.
„Vegna þess við vorum með 16 leikmenn vissum við alveg þegar við komum í þetta verkefni að við gætum lent í því að setja markmann inn sem útileikmann. Við tókum spjall við Taylor í gærkvöldi (fimmtudagskvöld) og hún tók vel í það að vera til taks ef þyrfti. Ég var nokkuð viss um að hún þyrfti að gera það og það varð niðurstaðan, vegna þess að leikmenn voru bara búnir á því,“ sagði Jeffs við Vísi.
Blikar töpuðu gegn Aktobe í vítaspyrnukeppni en sigruðu Dinamo og fara því í Evrópubikarinn. Agla María Albertsdóttir var önnur þeirra sem glímdi við veikindi en fyrirliðinn kom inn á gegn Dinamo og skoraði markið sem kom Blikum í framlengingu og svo sigurmarkið í framlengingunni sjálfri.
Taylor er bandarískur markvörður sem stóð vaktina í þremur síðustu deildarleikjunum fyrir Meistaradeildarleikina tvo. Herdís Halla Guðbjartsdóttir varði mark Blika gegn Aktobe og Dinamo.
Heimild: Vísir

Taylor kom inn á fyrir Katelyn Duong sem glímdi við veikindi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María veiktist úti í Kasakstan en náði að tryggja Blikum sigurinn gegn Dinamo.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs veiktist sjálfur í Kasakstan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

