Fotbolti.net
09.09.17 - 19:00
Ármann Örn Guðbjörnsson

Ejub Purisevic: Finnst eins og við höfum tapað

Auglýsing
Ejub Purisevic: Finnst eins og við höfum tapað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur Ólafsvík tók á móti Fjölni í 18. umferð Pepsi-Deildar karla í dag og buðu liðin uppá mikinn rússíbanaleik. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga var ekki paránægður eftir þennan leik en hans menn komust 3-0 yfir eftir hálftímaleik en misstu þá forustu niður og enduðu á því að þurfa að koma sjálfir til baka til að jafna 4-4
"Mér finnst bara eins og við höfum tapað þessum leik, 3-0 yfir en samt miðað við varnarleikinn hjá okkur í dag þá er það kannski bara gott að hafa náð jafntefli í dag sérstaklega miðað við að hafa lent 4-3 undir seint í leiknum"



Ejub er ánægður hins vegar að sitt lið sé með þau stig sem liðið hefur í dag.



"Það hefðu ekki margir haldið fyrir mót að á þessum tíma værum við með 20 stig og fyrir ofan fallsæti"



Guðmundur Steinn Hafsteinsson, fyrirliði Víkings var ekki með í dag vegna meiðsla en Ejub segir að það sé ekki líklegt að hann verði mikið meira með í sumar.



Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.