Argentínska goðsögnin Diego Armando Maradona var í gær kynntur sem nýr þjálfari Gimnasia í Argentínu en hann fékk höfðingjalegar móttökur á heimavelli liðsins.
Það þarf ekki að deila um það að Maradona er einn besti knattspyrnumaður sögunnar en hann fór að taka að sér þjálfun eftir glæstan fótboltaferil.
Hann hefur þjálfað argentínska landsliðið en síðast var hann þjálfari Dorados í Mexíkó. Hann þurfti þó að hætta vegna veikinda en hann er mættur aftur.
Hann er tekinn við Gimnasia í argentínsku úrvalsdeildinni og fékk hann blíðar móttökur á heimavelli liðsins í gær en hann mætti á svæðið í golfbíl.
Maradona táraðist við móttökurnar og náði að peppa mannskapinn vel með því söngvum. Hægt er að sjá myndskeið af kynningu Maradona hér fyrir neðan.
#MaradonaEnTNTSports | Así entró entró Diego Maradona al Bosque #MaradonaEnGimnasia pic.twitter.com/9nBSdgqKc3
— TNT Sports LA (@TNTSportsLA) September 8, 2019
#MaradonaEnTNTSports | Diego Maradona es presentado en Gimnasia y... se prendió a: "El que no salta es un inglés" 🔟 pic.twitter.com/K3fNXOmHGR
— TNT Sports LA (@TNTSportsLA) September 8, 2019
Athugasemdir