Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 09. september 2020 20:50
Victor Pálsson
Özil segist vera tilbúinn: Því miður vel ég ekki hópinn
Mynd: Getty Images
Mesut Özil, leikmaður Arsenal, segist vera í góðu standi og er reiðubúinn að spila gegn Fulham um næstu helgi.

Özil er sterklega orðaður við brottför þessa dagana en hann er ekki fyrsti maður á blað hjá Mikel Arteta, stjóra liðsins.

Seinni part síðustu leiktíðar þá fékk Özil mjög takmarkað að spila og var búist við að hann myndi kveðja í sumar.

Eins og staðan er þá er Özil leikmaður Arsenal sem hefur leik gegn Fulham í deildinni klukkan 11:30 á laugardag.

„Ég er í standi, tilbúinn og geri mitt besta. Því miður er það ekki undir mér komið að velja hópinn um helgina. Við sjáum til," sagði Özil á Twitter síðu sinni.

Það verður fróðlegt að sjá hvort miðjumaðurinn verði í hópnum um næstu helgi.

Athugasemdir
banner
banner