Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. september 2021 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo frábær næstu þrjú árin: Ég er ekki í fríi
Mynd: Heimasíða Man Utd
Cristiano Ronaldo er 36 ára gamall og hann vantar ekki sjálfstraustið eftir að hafa skrifað undir samning við Manchester United.

Ronaldo er einn af bestu knattspyrnumönnum allra tíma og helst þekktur fyrir óbilandi metnað og fullkomið líkamsástand auk þess að vera einn af allra helstu markaskorurum sögunnar.

Ronaldo vann ensku úrvalsdeildina þrisvar sinnum með Manchester United og Meistaradeildina einu sinni. Hann er ekki kominn aftur til að taka því rólega.

„Ég er kominn hingað til að vinna. Ég er ekki hérna í fríi. Það sem gerðist í fortíðinni er gott, við unnum mikilvægar keppnir en það eru mörg ár liðin. Ég er kominn aftur til að vinna meira," sagði Ronaldo við vefsíðu Man Utd.

„Ég er klár í slaginn, þetta er frábært tækifæri fyrir mig, stuðningsmennina og félagið að taka skref áfram. Ég er klár í slaginn og ég hugsa að ég verði áfram frábær næstu þrjú eða fjögur árin."
Athugasemdir
banner
banner
banner