Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 09. september 2022 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir lykilmenn framlengja við ÍR
Bragi, Árni Freyr og Oliver.
Bragi, Árni Freyr og Oliver.
Mynd: ÍR
Þeir Bragi Karl Bjarkason og Oliver Elís Hlynsson skrifuðu fyrr í þessari viku undir nýja samninga við ÍR til næstu tveggja ára.

„Bæði Bragi og Oliver hafa verið lykilmenn í liði ÍR í sumar og bindur félagið vonir við þá áfram inn í framtíðina," segir í tilkynningu ÍR.

Bragi Karl er tvítugur og Oliver Elís er fæddur 2004. Oliver hefur spilað nítján leiki í 2. deild í sumar og skorað eitt mark. Bragi hefur spilað níu leiki og skorað fimm mörk en ÍR er í sjötta sæti 2. deildar.

Hér að neðan má sjá viðtöl við kappana sem og þjálfarann Árna Frey Guðnason.


Óliver og Bragi voru kampakátir eftir að hafa skrifað undir og Árna lýst vel á framtíðina🤍💙🤝

#áframír
#hvítbláahjartað

Posted by ÍR Fótbolti on Þriðjudagur, 6. september 2022

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner