Unnur Dóra um sigurmarkið: Hugsaði bara um að skjóta ekki yfir

Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði sigurmark Þróttar í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði sigurmark Þróttar í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Unnur Dóra Bergsdóttir var hetja Þróttar þegar liðið varð bikarmeistari í fyrsta sinn með 1-2 sigri gegn Grindavík/Njarðvík. Hún skoraði sigurmarkið og var að vonum í skýjunum eftir leik.
„Tilfinningin er bara geggjuð. Ég var að segja áðan að ég er svo stolt af þessu liði. Það er svo gaman að vera með þeim og þetta er bara geggjuð tilfinning,“ sagði Unnur Dóra.
Hún ætlaði upphaflega að láta vaða fyrr í sókninni en hélt áfram með boltann og kláraði síðan færið af yfirvegun.
Ég ætlaði að byrja á að skjóta þegar ég var að hlaupa með boltann, svo sá ég Björgu þarna úti og ég huigsaði bara um að halda hlaupinu áfram. Eina sem ég hugsaði var bara að skjóta ekki yfir, bara leggja hann, þarf ekki að vera fast. Það er gott að það heppnaðist.
Þrótturum hafði gengið erfiðlega á köflum í sumar en liðið fann taktinn undir lok hefðbundins leiktíma í Bestu deildinni og kórónaði góðan kafla með bikarmeistaratitlinum.
„Við áttum erfitt tímabil en það er bara eitthvað sem fótboltinn býður upp á. Það var undir okkur komið að stíga upp og við gerðum það. Ég er ógeðslega stolt af þessu liði.“
Nú tekur við verðskuldaður fögnuður hjá nýkrýndum bikarmeisturum.
„Það á bara að hafa gaman. Nóttin er ung. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig planið er en við förum örugglega fyrst í Þróttarheimilið og byrjum þar.“
