09.09.26 - 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Bjarni skoraði í bikarsigri - Lyngby einnig áfram

Bjarni Aðalsteinsson skoraði fyrra mark Roskilde

Mynd: Roskilde

Bjarni Aðalsteinsson skoraði í 2-1 sigri Roskilde á BK Frem í 32-liða úrslitum danska bikarsins í kvöld.
Bjarni, sem kom frá KA í byrjun árs, kom Roskilde yfir á 19. mínútu og Frederik Howald tvöfaldaði forystuna tuttugu mínútum síðar.
Heimamenn í BK Frem minnkuðu muninn undir lok fyrri hálfleiks en lengra komust þeir ekki. Roskilde vann því 2-1 sigur og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum.
Davíð Helgi Aronsson, Daníel Freyr Kristjánsson og William Steindórsson voru í byrjunarliði Lyngby í 2-0 sigri á VSK Arhus. Markvörðurinn Jón Sölvi Símonarson, sem kom frá ÍA á dögunum, sat á bekknum en Ísak Snær Þorvaldsson var ekki með.
Jakob Gunnar Sigurðsson var í byrjunarliði Hilleröd sem er að gera 1-1 jafntefli við Vanlöse. Jakob var farinn af velli þegar Hilleröd jafnaði undir lokin og er framlenging framundan.
Arnór Gauti Jónsson sat allan tímann á bekknum hjá Slaven Belupo sem vann 5-0 stórsigur á Dragovoljac í króatíska bikarnum og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum.