Fotbolti.net
09.09.26 - 20:51
Brynjar Ingi Erluson

Championship: WBA á toppinn

Aune Heggebö skoraði sigurmark WBA

Aune Heggebö skoraði sigurmark WBA

Canon

Mynd: WBA

Norwich City og West Bromwich Albion unnu annan leikinn í röð í ensku B-deildinni í kvöld.
Aune Heggebö skoraði eina mark leiksins þegar WBA vann 1-0 sigur á Derby County. Hann skoraði af stuttu færi á 16. mínútu eftir sendingu frá vinstri úr teignum.

WBA þurfti að leika manni færri frá 34. mínútu þegar Brayann Pereira fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir heimskulegt brot úti á kanti.

Tíu leikmenn WBA héldu þó út og fögnuðu öðrum sigrinum í röð. Liðið fór um leið á toppinn með 13 stig eftir sex leiki en Derby er í 22. sæti með fjögur stig.

Norwich vann 2-1 sigur á Birmingham. Oscar Schwartau kom liðinu yfir á 28. mínútu með þrumuskoti utan teigs sem söng í hægra horninu. Ellefu mínútum síðar tvöfaldaði Papa Diallo forystuna af stuttu færi eftir laglegan undirbúning Andre Brooks.

Carles Vicente hleypti spennu í leikinn á 64. mínútu þegar hann fékk frábæra sendingu inn á miðjan teiginn og skoraði. Birmingham fann hins vegar ekki jöfnunarmarkið og Norwich landaði sigrinum.

Norwich er í 9. sæti með níu stig en Birmingham í því fimmtánda með sjö stig.

Derby County 0 - 1 West Brom
0-1 Aune Heggebo ('16 )
Rautt spjald: Brayann Pereira, West Brom ('34)

Norwich 2 - 1 Birmingham
1-0 Oscar Schwartau ('28 )
2-0 Papa Amadou Diallo ('39 )
2-1 Carlos Vicente ('64 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea8+717
2West Ham8+1115
3Middlesbrough8+415
4Wolves7+514
5West Brom8+214
6QPR8+313
7Stoke City8+113
8Bristol City8-113
9Charlton Athletic8-312
10Birmingham8+111
11Millwall8011
12Lincoln City8-111
13Southampton8+910
14Wrexham8-310
15Bolton8-410
16Blackburn809
17Norwich8-19
18Sheffield Utd8-29
19Portsmouth7-18
20Watford8-38
21Cardiff City8-27
22Derby County8-75
23Preston NE8-74
24Burnley8-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.