09.09.26 - 17:46
Brynjar Ingi Erluson
Ekkert riftunarákvæði í nýjum samningi bakvarðarins

Lewis Hall í leik með Newcastle

Mynd: EPA

Lewis Hall í leik með Newcastle

Mynd: EPA
Enski vinstri bakvörðurinn Lewis Hall mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við Newcastle United á næstu dögum en ekkert riftunarákvæði verður í samningnum.
Hall, sem er 22 ára gamall, var orðaður við Manchester United í sumar en Newcastle vildi ekki selja hann.
Englendingurinn er lykilmaður hjá Newcastle sem er að endurnýja liðið eftir að hafa misst þrjá mikilvæga leikmenn.
Samkvæmt Craig Hope hjá Daily Mail er Hall að skrifa undir nýjan samning við félagið. Ekkert riftunarákvæði verður í samningnum enda ætlar Newcastle að halda honum til framtíðar.
Hall kom til Newcastle á láni frá Chelsea árið 2023 og var keyptur ári síðar. Hann hefur leikið 102 leiki fyrir félagið og skorað þrjú mörk. Þá varð hann deildabikarmeistari með liðinu á síðasta ári.