Fotbolti.net
09.09.26 - 19:36
Brynjar Ingi Erluson

Elskar að skora á Anfield - Fimm mörk í síðustu þremur leikjum

Marcos Llorente væri eflaust til í að spila á Anfield í hverri viku

Marcos Llorente væri eflaust til í að spila á Anfield í hverri viku

Canon

Mynd: EPA

Spænski leikmaðurinn Marcos Llorente er búinn að koma Atlético Madríd í forystu gegn Liverpool á Anfield, en þetta er einmitt maðurinn sem stuðningsmenn Liverpool óttuðust hvað mest fyrir kvöldið.
Llorente kann vel við sig gegn Liverpool á Anfield en hann hefur tvívegis skorað þar tvennu.

Sú fyrri kom í eftirminnilegum leik árið 2020 þegar hann skaut Atlético í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Samlandi hans Adrian átti þá afleitan leik í marki Liverpool.

Sem betur fer fyrir Liverpool var hann meiddur fyrir útileikinn ári síðar.

Liðin mættust aftur í deildarkeppninni á síðasta ári og Llorente skoraði bæði mörk Atlético í 3-2 tapi.

Einhverjir stuðningsmenn Liverpool fóru á límingunum þegar þeir sáu nafn hans í byrjunarliði Atlético í kvöld. Óttinn reyndist ekki ástæðulaus því Llorente kom gestunum yfir á 17. mínútu eftir stoðsendingu frá Argentínumanninum Julian Alvarez.

Tíunda Meistaradeildarmark hans og helmingur þeirra komið á Anfield.

Atlético er 1-0 yfir þegar þetta er skrifað og rúmar fimmtán mínútur eftir af fyrri hálfleik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.