Fotbolti.net
09.09.26 - 21:25
Brynjar Ingi Erluson

Enski deildabikarinn: Ótrúlegur níu marka leikur í Lundúnum - Palmer og Welbeck með tvö

Chelsea er komið áfram

Chelsea er komið áfram

Canon

Mynd: EPA

Chelsea 6 - 3 Leeds
0-1 Tarik Muharemovic ('23 )
0-2 Brenden Aaronson ('48 )
1-2 Cole Palmer ('52 , víti)
2-2 Cole Palmer ('55 )
3-2 Pedro Neto ('60 )
4-2 Danny Welbeck ('65 )
4-3 Dominic Calvert-Lewin ('75 )
5-3 Valentin Barco ('80 )
6-3 Danny Welbeck ('90 )
Chelsea vann magnaðan 6-3 endurkomusigur á Leeds í 3. umferð enska deildabikarsins á Stamford Bridge í kvöld. Xabi Alonso kallaði á stóru byssurnar í hálfleik og þær sneru leiknum við eftir að gestirnir komust tveimur mörkum yfir.

Alonso gerði níu breytingar á byrjunarliðinu og gaf mörgum tækifæri. Leeds nýtti sér það og Tarik Muharemovic kom gestunum yfir á 23. mínútu með skalla eftir hornspyrnu Harry Wilson.

Mike Penders þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra í marki Chelsea og Alonso brást við með fjórum breytingum í hálfleik. Reece James, Morgan Rogers, Cole Palmer og Pedro Neto komu allir inn á.

Það voru þó Leeds-menn sem skoruðu næst, aðeins þremur mínútum eftir hlé. Lukas Nmecha náði að hælsenda fyrirgjöf frá hægri út á Aaronson sem smellti boltanum í netið.

Þá loksins vaknaði Chelsea til lífsins og sneri leiknum á hvolf með fjórum mörkum á átta mínútum.

Palmer minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 52. mínútu og jafnaði þremur mínútum síðar með yfirvegaðri afgreiðslu í teignum eftir sendingu frá Rogers.

Neto og Danny Welbeck bættu svo við tveimur mörkum á næstu fimm mínútum. Palmer sendi inn á Rogers sem náði að tækla boltann til Neto og hann kom Chelsea yfir.

Rogers fullkomnaði síðan stoðsendingaþrennuna þegar hann lagði upp fjórða markið fyrir Welbeck. Framherjinn átti þó sjálfur stóran þátt í markinu með glæsilegri gabbhreyfingu sem sendi varnarmenn Leeds út í búð áður en hann skoraði með lágu skoti.

Varamaðurinn Dominic Calvert-Lewin hleypti spennu í leikinn á ný tæpum tíu mínútum síðar en Chelsea gerði út um hann með tveimur mörkum undir lokin.

Valentin Barco kom Chelsea í 5-3 með föstu skoti eftir að fyrirgjöf frá hægri fór í gegnum teiginn og af markverði Leeds. Welbeck skoraði svo sitt annað mark seint í uppbótartíma þegar hann stýrði misheppnuðu skoti Barco í netið með höfðinu.

Chelsea er því komið í 16-liða úrslit eftir stórkostlega endurkomu, en drátturinn fer fram í næstu viku.
Danny Welbeck skoraði tvennu og hefur nú gert þrjú mörk í deildabikarnum

Danny Welbeck skoraði tvennu og hefur nú gert þrjú mörk í deildabikarnum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.