09.09.26 - 21:12
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Fylkir vann HK í fimm marka leik í Kórnum

Guðmundur Tyrfingsson gerði sigurmarkið úr vítaspyrnu undir lokin

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

HK 2 - 3 Fylkir
1-0 Dominik Radic ('45 )
1-1 Kári Sigfússon ('55 )
1-2 Theodór Ingi Óskarsson ('63 )
2-2 Arnþór Ari Atlason ('76 )
2-3 Guðmundur Tyrfingsson ('89 , víti)
Lestu um leikinn
1-0 Dominik Radic ('45 )
1-1 Kári Sigfússon ('55 )
1-2 Theodór Ingi Óskarsson ('63 )
2-2 Arnþór Ari Atlason ('76 )
2-3 Guðmundur Tyrfingsson ('89 , víti)
Lestu um leikinn
Fylkir vann dramatískan 3-2 sigur á HK í Kórnum í kvöld í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í Bestu deild karla. Guðmundur Tyrfingsson skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu undir lokin.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Dominik Radic kom heimamönnum yfir skömmu fyrir hlé. Fylkismenn töpuðu boltanum í álitlegri stöðu og Þorsteinn Aron Antonsson sendi Radic af stað. Framherjinn geystist upp völlinn, lék á Ólaf í markinu og skoraði af öryggi.
HK fór því með eins marks forystu í hálfleik en Kári Sigfússon jafnaði þegar um tíu mínútur voru liðnar af þeim síðari. Eftir hornspyrnu barst boltinn til Guðfinns Þórs Leóssonar sem lagði hann á Kára og hann þrumaði í netið.
Átta mínútum síðar hafði Fylkir snúið taflinu við. Magnús Daði Ottesen tók niður fyrirgjöf Kára og lagði boltann aftur á Theodór Inga Óskarsson. Skot hans fór af varnarmanni, upp í loftið og í fjærhornið. Birgir Steinn Styrmisson reyndi að bjarga á línu en mistókst ætlunarverk sitt.
HK sótti í sig veðrið og jafnaði stundarfjórðungi fyrir leikslok. Karl Ágúst Karlsson fann Radic sem lagði boltann óeigingjarnt á Arnþór Ara Atlason og hann skoraði í autt markið.
Fylkismenn urðu aftur hættulegri eftir jöfnunarmarkið og fengu vítaspyrnu undir lokin þegar Birgir Steinn braut á Kára. Guðmundur Tyrfingsson fór á punktinn og þrumaði boltanum efst í vinstra hornið. Markvörðurinn valdi rétt horn en náði ekki til boltans.
HK fann ekki annað jöfnunarmark og Fylkir fer því með eins marks forskot í síðari leikinn í Árbæ eftir fjóra daga. Gott veganesti fyrir Fylkismenn en einvígið er enn galopið.