09.09.26 - 18:54
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Þróttarar fara með forystu í Laugardalinn

Sigurður Egill Lárusson skoraði eina mark leiksins

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur marði 1-0 sigur á Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í Bestu deild karla.
Það dró strax til tíðinda þegar Oumar Diouck slapp í gegn og Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, kom út á móti honum og stöðvaði hann. Njarðvíkingar vildu fá dæmt brot og rautt spjald en fengu hvorugt.
Aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Sigurður Egill Lárusson eina mark leiksins. Aron Snær Ingason fékk boltann og keyrði að vítateignum áður en hann sendi frábæran bolta á fjærstöngina. Þar mætti Sigurður Egill og stýrði honum í netið.
Eftir fjörugar upphafsmínútur var fyrri hálfleikurinn jafn. Aron Snær fékk þó ágætis færi til að bæta við en Guy Smit varði frábærlega.
Njarðvíkingar fengu dauðafæri til að jafna á 68. mínútu. Diouck fékk boltann í fæturna, einn og óvaldaður í teignum, og lét vaða með föstu skoti. Þórhallur kastaði sér hins vegar niður og varði glæsilega.
Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, var afar ósáttur við dómgæsluna og lét fjórða dómarann heyra það.
„Þið ættuð að skammast ykkar allir saman,“ sagði Davíð Smári samkvæmt textalýsingu Fótbolta.net.
Nokkrum mínútum síðar kölluðu Njarðvíkingar eftir vítaspyrnu þegar Leandro Fernandes féll í teignum en Gunnar Freyr Róbertsson, dómari leiksins, sá ekkert athugavert.
Þróttarar héldu út og fara með eins marks forskot í síðari leikinn sem verður á AVIS-vellinum í Laugardal eftir fjóra daga.