09.09.26 - 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Raphinha og Yamal fóru á kostum - Demirovic sökkti Amin og félögum

Raphinha er kominn með átta mörk í fimm leikjum

Mynd: EPA

Lamine Yamal skoraði og lagði upp tvö

Mynd: EPA

Ermedin Demirovic skoraði þrennu á tólf mínútum

Spánarmeistarar Barcelona byrja Meistaradeildina með látum en liðið vann öruggan og mjög svo þægilegan 5-1 sigur á Feyenoord á Nou Camp í kvöld. Ermedin Demirovic setti þrennu á tólf mínútum í 3-1 sigri Stuttgart á Viking.
Raphinha hefur verið sjóðandi heitur með Börsungum í upphafi tímabils og var fljótur að koma sér á blað gegn Feyenoord.
Hann fékk boltann frá Lamine Yamal í teignum og hótaði skoti með þeim afleiðingum að tveir varnarmenn Feyenoord fóru í rennitæklingu. Brasilíumaðurinn sendi þá báða út í búð áður en hann renndi boltanum snyrtilega framhjá markverðinum.
Þegar rúmar tuttugu mínútur voru liðnar vildu Feyenoord-menn fá vítaspyrnu eftir að Anis Hadj Moussa féll í teignum. Ekkert var dæmt og skömmu síðar bætti Karim Adeyemi öðru marki við fyrir Barcelona.
Nýi maðurinn keyrði inn af vinstri vængnum, hlóð skotfótinn og þrumaði boltanum efst í hægra hornið. Stórkostlegt mark.
Barcelona hafði öll tök á leiknum og Raphinha bætti við sínu öðru marki á 57. mínútu. Pedri þræddi hann í gegn með glæsilegri sendingu og Brasilíumaðurinn kláraði af öryggi.
Lamine Yamal kom Börsungum í 4-0 á 77. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Hann skaut í gegnum holóttan varnarvegg Feyenoord og í hægra hornið. Gestirnir vörðust þar afar illa.
Sam Steijn klóraði í bakkann fyrir Feyenoord undir lokin. Goncalo Borges átti þá frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Steijn mætti og skoraði af öryggi.
Gabriel Jesus kom inn af bekknum hjá Barcelona og nýtti tækifærið til að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir komuna frá Arsenal undir lok gluggans. Yamal sýndi skemmtilega takta á kantinum og sendi fyrir á Brasilíumanninn sem skallaði boltann í vinstra hornið.
Það reyndist síðasta mark leiksins og Barcelona fagnaði öruggum 5-1 sigri. Börsungar mæta næst Galatasaray eftir rúman mánuð en Feyenoord mætir Como.
Demirovic með þrennu á tólf mínútum
Stuttgart vann 3-1 sigur á Noregsmeisturum Viking á MHP-leikvanginum þar sem Ermedin Demirovic stal senunni með fyrstu þrennu Meistaradeildarinnar á tímabilinu.
Hann kom heimamönnum yfir á 20. mínútu með skoti af stuttu færi í slána og inn eftir sendingu frá vinstri. Zlatko Tripic jafnaði fyrir Norðmenn tveimur mínútum síðar en Demirovic var hvergi nærri hættur.
Hann kom Stuttgart aftur yfir eftir stungusendingu inn fyrir vörnina. Markvörður Viking náði að verja skotið en boltinn fór í slána og inn.
Sex mínútum síðar fullkomnaði Demirovic þrennuna. Hann fékk boltann í teignum og skaut á markið þar sem markvörðurinn hefði átt að gera betur en réði ekki við tilraunina.
Þrennan kom á aðeins tólf mínútum og er ein sú fljótasta í sögu Meistaradeildarinnar.
Amin Cosic, sem kom til Viking frá KR í sumar, sat allan tímann á bekknum og bíður því enn eftir frumraun sinni í Meistaradeildinni.
Viking tekur næst á móti Bayern München eftir mánuð en Stuttgart heimsækir Slovan Bratislava til Slóvakíu.
Barcelona 5 - 1 Feyenoord
1-0 Raphinha ('3 )
2-0 Karim Adeyemi ('22 )
3-0 Raphinha ('57 )
4-0 Lamine Yamal ('77 )
4-1 Sem Steijn ('82 )
5-1 Gabriel Jesus ('85 )
Stuttgart 3 - 1 Viking FK
1-0 Ermedin Demirovic ('20 )
1-1 Zlatko Tripic ('22 )
2-1 Ermedin Demirovic ('26 )
3-1 Ermedin Demirovic ('32 )