Fotbolti.net
09.09.26 - 23:27
Brynjar Ingi Erluson

Mudryk frá í sex til átta vikur eftir meiðsli á æfingu

Mudryk frá í sex til átta vikur eftir meiðsli á æfingu
Canon

Mynd: Tottenham

Úkraínski vængmaðurinn Mykhailo Mudryk verður ekki með Tottenham næstu sex til átta vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu. Þetta segir Alasdair Gold á X.
Mudryk kom til Tottenham á láni frá Chelsea undir lok félagaskiptagluggans og sameinaðist þar Roberto De Zerbi á ný. Þeir unnu saman hjá Shakhtar þegar Úkraínumaðurinn sló fyrst í gegn.

Mudryk hafði verið frá keppni í tæp tvö ár eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann var dæmdur í fjögurra ára bann fyrr á árinu en það var fellt úr gildi eftir áfrýjun í sumar.

Hann hefur því fengið tækifæri til að blása nýju lífi í ferilinn undir stjórn De Zerbi en í kvöld var greint frá enn einu bakslaginu.

Alasdair Gold og Fabrizio Romano segja á X að Mudryk hafi meiðst á ökkla og verði frá í sex til átta vikur. Hann snýr því í fyrsta lagi aftur eftir landsleikjahléið.

Mudryk lék í 16 mínútur í markalausu jafntefli við Nottingham Forest um helgina. Hann hafði áður fengið nokkrar mínútur með Chelsea á undirbúningstímabilinu áður en meiðsli settu strik í reikninginn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.